Útboð - Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið: Vesturbakki

Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið:

Vesturbakki

Verklok eru 01.09.2022

Verkið felur í sér gerð á nýrri götu, framhald af Vesturbakka, í Þorlákshöfn.

Verktaki skal jarðvegsskipta götur og gangstéttar samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag. Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, ljósleiðaralagnir, ljósastauralagnir, setja upp ljósastaura og aðstoða við lagningu annarra veitna.

 

Helstu magntölur eru:

Gröftur 3.200 m³

Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 5.500 m³

Fráveitulagnir 465 m

Vatnsveitulagnir 300 m

Ljósastaurar 13 stk

Hitaveitulagnir 815 m

 

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér:

https://olfus.ajoursystem.is/Tender/DirectLink/739da902-a7bf-44ba-acc7-4b59877c2011

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 10:00 miðvikudaginn 13. apríl 2022.

 

Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur
tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar
tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.

 

Byggingarfulltrúinn í Þorlákshöfn.

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?