Viss sýnir í Galleríi undir stiganum

VISS, Vinnu- og hæfingarstöð í Þorlákshöfn, opnar sölusýningu í Galleríi undir stiganum í Bæjarbókasafni Ölfuss. Á VISS starfa 8 manns og þar er framleitt ýmiskonar handverk og nytjavörur en hráefnið er að mestu leyti endurunnið. Einnig tekur Viss að sér verkefni fyrir fyrirtæki í nærumhverfinu auk þess sem handverk er selt á vinnustaðnum, Óseyrarbraut 4, frá kl. 9:00-16:00 alla virka daga.

Sýningin opnar fimmtudaginn 3. október kl. 16:30 og verður opin á opnunartíma bókasafnsins út mánuðinn. Safnið býður upp á kaffi og konfekt við opnunina, allir velkomnir!

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?