Fjölskylduskemmtun og jólaljósin tendruð

Fjölskylduskemmtun í Skrúðgarðinum ?

Jólaljósin verða tendruð á bæjarjólatrénu föstudaginn 27. nóvember kl. 17:00 í Skrúðgarðinum.

Komdu og taktu þátt í notalegri og skemmtilegri fjölskyldustund þegar við tendrum jólaljósin og setjum sannkallaðan jólablæ á bæinn! ✨

  • Lúðrasveitin leikur jólalög
  • Barnakór grunnskólans syngur
  • Grýla og Skjóða mæta hressar og kátar
  • Jólasveinarnir láta að sjálfsögðu sjá sig og skemmta gestum með látum!

Fallega, jarðfasta grenitréð í Skrúðgarðinum verður bæjarjólatré okkar og fær að klæðast glitrandi jólaljósum í tilefni jólanna. ✨?

Hlökkum til að sjá ykkur í Skrúðgarðinum og eiga saman notalega jólastund!