Álfaheimar - Fjársjóðskista 8/7

Við á Álfaheimum fórum í fjársjóðsleit í dag. Við fengum fjársjóðskort með myndum á sem við notuðum til að finna fjársjóðinn. Þetta fannst börnunum rosalega gaman. Það sem við fundum í fjársjóðskistunni voru hlutir sem við notuðum til að snerta, finna mismunandi áferðir. Sumt var hart, annað mjúkt og alls konar á litin. Einnig voru nuddtæki úr tré í kistunni sem kennararnir notuðu til að nudda þau börn sem vildu. Við enduðum svo á því að fara aðeins á ærslabelginn.