Goðheimar- Hesthúsaferð 2020

Við fórum í langa göngferð upp í hesthús til að skoða litlu lömbin og foreldra þeirra, ærnar og hrútinn. Tommi tók fyrst á móti okkur og sýndi okkur litlu lömbin. Kolla tók svo á móti okkur og sýndi okkur hestana sína og hundana. Snædís Ugla kynnti okkur fyrur henni Lukku sinni og sýndi okkur hnakkinn sinn. Svo fengum við okkur melónu og lékum okkur í móanum hjá hesthúsunum. Gönguferðin var í alla staði mjög vel heppnuð.