Ásheimar - Hænsnaferð ´19

Í gær fórum við til Þuríðar og Ármanns að skoða hænurnar. Börnin fengu að gefa þeim korn og saltstangir. Þau voru ekki öll á því að gefa þeim saltstangirnar heldur rötuðu þær oft frekar upp í börnin ;) Síðan var þeim boðið að halda á hænunum en það voru ekki allir á því. Þetta var skemmtileg ferð og viljum við þakka Þuríði fyrir að taka á móti okkur.