Ásheimar - Vináttuverkefni

Á föstudaginn kom björgunarsveitin Mannbjörg keyrandi inn á leikskólalóðina með vináttubangsann Blæ. Blær fer alltaf í sumarfrí í maí og kemur svo aftur í byrjun september.

Í leikskólanum erum við að vinna með vináttuverkefni Barnaheilla sem er forvarnarverkefni gegn einelti. Námsefni fyrir yngstu börnin er væntanlegt en þangað til erum við að hlusta á lögin sem fylgja og einnig fá öll börnin lítinn bangsa sem geymdur er í leikskólanum. Þessi bangsi er hugsaður fyrir börnin ef þau þurfa t.d. á huggun að halda, líður illa eða þurfa bara smá knús.