Goðheimar - Heimsókn í tónlistarskólann

Í gær var okkur boðið í heimsókn í tónlistarskólann en það var hún Ester sem tók á móti okkur. Hún fræddi börnin aðeins um píanóleik og tegundir af píanóum og fengu öll börnin að kíkja ofan í flygilinn þegar hún spilaði. Síðan fengum við að heyra nokkur börn spila á píanó en það voru þau, Lilja, Julia Lis, Kolbeinn Óli og Ronja sem spiluðu fyrir okkur.