Goðheimar - myndir í janúar 2018

Það er ýmislegt búið að bralla þessa fyrstu daga ársins. Embla Guðlaug kom með tvo krabba í leikskólann einn daginn og fengu allir að skoða þá. Sumum fannst frekar vond lykt af þeim og vildu helst ekkert vera hafa þá inni. Föstudaginn síðasta var fjólublár litadagur og fórum við í söngstund og sungum lög sem tengjast þrettándanum sem var daginn eftir. Allir voru búnir að búa sér til þrettándahatta eða kórónur.