Goðheimar - Síðasti dagurinn

Í dag hætta síðustu börnin á Goðheimum þar sem leikskólinn er farinn í sumarfrí. Það er alltaf erfitt að kveðja börnin sem eru búin að taka þátt í stórum hluta af degi manns í heilt ár, við eigum alltaf mikið í þessum börnum "okkar".

Viljum við kennararnir á deildinni þakka bæði börnum og foreldrum innilega fyrir samveruna í vetur. Hafið það gott í sumarfríinu og gangi ykkur vel krakkar í 1. bekk.  

Kveðja frá Helenu, Rannveigu, Sjöfn, Svövu, Kim og Þóru