1. bekkur fékk hjálma að gjöf.

Það voru kátir 1. bekkingar sem tóku við reiðhjólahjálmum frá Kiwanis, núna í maí. Kiwanis klúbburinn Ölver hefur ár hvert fært nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma. 

Ekki veitir af þar sem veðurblíðan leikur við hvern sinn fingur þessa dagana.

Við þökkum kærlega fyrir þessa veglegu gjöf.