1.bekkur fékk hjálma að gjöf

Það voru kátir 1. bekkingar sem tóku við reiðhjólahjálmum frá Kiwanis í dag 3. júní. Kiwanis klúbburinn Ölver hefur ár hvert fært nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma.

Ekki veitir af þar sem sumarið er komið og nemendur duglegir að nota hjólin.

Við þökkum kærlega fyrir þessa veglegu gjöf