- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Svokölluð 80 daga hátíð var haldin í 10. bekk á dögunum þar sem einungis 80 skóladagar voru eftir af skólagöngu nemenda í 10. bekk. Hátíðin markaði upphaf lokasprettsins og minnti nemendur á gildi samheldni, vinnugleði og metnaðar á þessum síðustu vikum skólaársins.
Hátíðin hófst á stuttri opnun þar sem Ólína skólastjóri ræddi tilgang samkomunnar og fór yfir farinn veg. Að því loknu horfðu nemendur á myndbönd meðal annars um vaxtarhugarfar, seiglu og trú á eigin getu.
Unnur, námsráðgjafi skólans, tók svo til máls og fór yfir næstu skref í átt að framhaldsskóla, umsóknarferlið sjálft og svaraði ýmsum spurningum sem brunnu á nemendum.
Að því loknu flutti Elliði bæjarstjóri stutta hvatningarræðu þar sem hann lagði áherslu á að nemendur taki líf sitt ekki of alvarlega á þessum tímapunkti, leyfi sér að staldra við og gera mistök sem eru óhjákvæmilegur hluti þess að þroskast. Hann ræddi einnig framtíðarmöguleika í síbreytilegum heimi og mikilvægi þátttöku ungs fólks í samfélaginu.
Að lokum flutti Guðlaug deildarstjóri lokaorð og þakkir og minnti á að hver dagur skiptir máli og hvatti nemendur til að leggja sig fram á lokametrunum. Hátíðinni lauk svo á notalegri samveru þar sem boðið var upp á skúffuköku og mjólk sem deildarstjóri og umsjónarkennarar höfðu bakað.
80 daga hátíðin var bæði hátíðleg og gleðileg og markaði vonandi sterk og jákvæð tímamót í lífi 10. bekkinga.