Alþjóðlegi Downs heilkennadagurinn

Á morgun, fimmtudaginn 21. mars er alþjóðlegi Downs heilkennadagurinn. Þá er fólk hvatt til að ganga um í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum til að draga fram fjölbreytileikann og til að minna á mikilvægi hans í samfélaginu. Dagsetningin er táknræn, hún vísar til þess að Downs heilhennið er orsakað af auka litning í litningapari 21, það eru þrjú eintök af litning 21 - 21.03.

Við í grunnskólanum hvetjum alla, sem vilja taka þátt, að mæta í skólann í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum.