- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Um þessar mundir stendur yfir barna- og ungmennaþing í Ölfusi en þátttakendur í þinginu eru börn og ungmenni frá leikskólaaldri til ungmenna sem búsett eru í sveitarfélaginu. Þingið var haldið fyrir nemendur grunnskólans þann 11. febrúar sl. en framkvæmdin var í höndum skólans og fulltrúa sveitarfélagsins í ungmennaráði. Markmiðið með þinginu er að fá fram skoðun barna- og ungmenna varðandi málefni sem snúa að þeim og réttindum þeirra.
Þingið í grunnskólanum var þrískipt eftir stigum en ritarar og hópstjórar komu úr röðum nemenda í 9. og 10. bekk sem stóðu sig afar vel í sínum hlutverkum.
Málstofurnar voru 5 og sneru að ólíkum viðfangsefnum sem viðkoma börnum, réttindum þeirra og skoðunum. Má þar nefna ýmis mál sem tengjast skólastarfinu beint en einnig fjölmörgum öðrum sem tengjast sveitarfélaginu. Þar má nefna félagslíf og menningu, íþróttir og hreyfingu, útisvæði og leikvelli, forvarnir, öryggi, umhverfi og skipulagsmál, fjölskyldu og vini, góða heilsu, góð samskipti og jákvætt samfélag.
Þingið gekk afar vel fyrir sig og það verður fróðlegt að sjá niðurstöður allra skólastiganna nú á næstu vikum.