Bókagjöf til allra nemenda í 8. - 10. bekk

Bókin Verum ástfangin af lífinu eftir Þorgrím Þráinsson kom út á dögunum. Bókin er stútfull af hvatningu og ráðum um hvernig maður getur verið sinnar eigin gæfu smiður í lífinu. Fjallað er um samskipti við vini og fjölskyldu, mikilvægi hreyfingar, markmiðssetningu, hvernig á að rækta hæfileika sína, baráttuna við kvíða og hvernig þú getur orðið betri manneskja. Bókin er framhald af fyrirlestrum sem Þorgrímur hefur farið með í skóla um allt land á undanförnum árum. Þorgrímur hefur komið til okkar í Þorlákshöfn á hverju skólaári og heimsóknir hans jafnan vakið athygli og góðar umræður meðal nemenda.

Sigrún Berglind, kennari á unglingastigi, fletti bókinni þegar hún kom á skólabókasafnið. Hún hugsaði strax að þessa bók þyrftu allir okkar unglingar að eignast. Sigrún tók sig til og hafði samband við Hannes Sigurðsson útgerðarmann hjá Hafnarnesi Veri og ræddi hugmyndina. Skemmst er frá því að segja að í dag komu Kata og Óli börn Hannesar og Tótu og afhenti okkur bókina að gjöf til allra nemenda á unglingastigi. Við höfðum einnig samband við Þorgrím. Hann var ekki lengi að bregðast við og kom til okkar og ritaði persónulega kveðju inni í hverja og eina bók.

Við í skólanum þökkum kærlega fyrir þessa höfðinglegu jólagjöf frá fjölskyldunni í Hafnarnesi Veri. Við vitum að bókin mun gagnast okkar nemendum vel.

Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá Sigrúnu Berglindi, Evu Rán og Elmar formenn nemendaráðs, Þorgrím, Katrínu og Ólaf.