Bókagjöf til skólabókasafnsins

í gær barst skólabókasafninu okkar höfðingleg gjöf. Helgi Jónsson frá Bókaútgáfunni Tindi færði safninu 15 bókatitla alls 25 bækur. Meðal annars voru þetta bækurnar um Kidda klaufa og Lindu en þetta eru afar vinsælir bókaflokkar meðal nemenda okkar. Frábær gjöf sem við þökkum kærlega fyrir og styður enn frekar við góðan bókakost skólabókasafnsins.