Danssýning skólans heppnaðist frábærlega

Í gær fór fram árleg danssýning skólans þar sem nemendur í 1.–7. bekk stigu á svið fyrir fullum sal af foreldrum og öðrum gestum. Sýningin heppnaðist afar vel og var greinilegt að mikil vinna og metnaður liggur að baki.

Anna Berglind Júlídóttir danskennari skólans hafði veg og vanda af sýningunni en hún er fastur og vinsæll liður í skólastarfinu. Nemendur sýndu fjölbreytta dansa, meðal annars freestyle, samkvæmisdansa og hipp hopp og nutu sín sannarlega á dansgólfinu. Við þökkum Önnu Berglindi kærlega fyrir hennar frábæru starf og metnaðarfullu kennslu í dansi.

Sýningunni lauk á einstaklega skemmtilegum lokadansi þar sem allir nemendur dönsuðu ásamt kennurum, stuðningsfulltrúum og skólastjórnendum við lagið Öll í sama liði. Lagið var samið í tilefni Dags gegn einelti og ber falleg skilaboð um virðingu, vináttu og samkennd. Höfundar lagsins eru Júlí Heiðar og eiginkona hans Dísa, en Júlí Heiðar er fyrrverandi nemandi skólans og sonur Önnu Berglindar. Það var því sérstaklega ánægjulegt að hafa þau bæði meðal gesta á sýningunni.