Eftirminnileg haustferð í Landmannalaugar

Þriðjudaginn 8. september fóru nemendur í 8. og 9. bekk í dagsferð í Landmannalaugar. Ferðin var í boði Kiwanismanna sem greiddu allan kostnað með ágóða af jólaskókassaverkefni klúbbsins.

Markmið ferðarinnar er að styðja við unglinga skólans og bjóða þeim upp á jákvæða og eftirminnilega upplifun í íslenskri náttúru. Þetta er áttunda haustið í röð sem Kiwanismenn standa fyrir slíkri ævintýraferð fyrir nemendur. Í fyrra var farið í Þórsmörk og hefur skapast sú hefð að fara annað hvert ár í Þórsmörk og hitt árið í Landmannalaugar. Þannig fá allir nemendur tækifæri til að heimsækja þessar tvær einstöku náttúruperlur áður en grunnskólagöngu þeirra lýkur.

Lagt var af stað frá skólanum klukkan 8:15 um morguninn og komið heim aftur um kvöldmatarleytið. Ferðin var frábær, náttúran skartaði sínu fegursta og veðrið lék við ferðalangana allan daginn.

Kiwanismenn sáu einnig um veitingar og snöruðu fram veitingum fyrir hópinn. Að gönguferð dagsins lokinni beið nemenda svo vegleg grillveisla sem vakti mikla lukku meðal svangra og þreyttra göngugarpa.

Nemendur og starfsfólk skólans vilja færa Kiwanismönnum innilegar þakkir fyrir höfðinglegt boð og einstakan stuðning við skólastarfið. Ferðin verður án efa eftirminnileg í huga þeirra sem þátt tóku.