Endurskinsmerki

Nú er dimmasti tíminn og mikilvægt að muna eftir endurskinsmerkjunum. Allir nemendur hafa nú fengið endurskinsmerki að gjöf frá Sjóvá og Brunavörnum Árnesinga. Við þökkum Sjóvá og Brunavörnum kærlega fyrir þessa umhyggju í garð nemenda.

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau á eftirfarandi stöðum:

  • Fremst á ermum 
  • Hangandi meðfram hliðum 
  • Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum  

Þá virkar endurskin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina óvarða vegfarendur þeim mun minni líkur eru á að slys verði. Það er staðreynd að ökumenn sjá óvarða vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ella og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.