Nemendur í 1. bekk fengu reiðhjólahjálma frá Kiwanismönnum

Það voru kátir 1. bekkingar sem tóku við reiðhjólahjálmum frá Kiwanis. Nemendur fengu sér göngutúr í Kiwanishúsið og tóku á móti hjálmum. Kiwanis klúbburinn Ölver hefur ár hvert fært nemendum 1. bekkjar reiðhjólahjálma. 

Ekki veitir af þar sem veðurblíðan leikur við hvern sinn fingur þessa dagana og nemendur fara um allt á hjólum.

Við þökkum kærlega fyrir þessa veglegu gjöf.