Kynning á verkefnum

Í skólanum okkar er það sífellt algengara að árgangar bjóði foreldrum/forráðamönnum sínum á kynningu í tengslum við námsefni sem verið er að vinna með.
Í morgun buðu nemendur og kennarar í 5. bekk foreldrum á kynningu á verkefnum sem tengjast landnámi Íslands. Kynningin heppnaðist mjög vel, verkefnin voru fjölbreytt, fróðleg og unnin af metnaði. Eftir kynninguna var boðið upp á spjall, kaffi, djús og kex.