Ferð í Landmannalaugar

Þriðjudaginn 6. september lögðu nemendur í 8. og 9. bekk af stað í dagsferð í Landmannalaugar. Ferðin er í boði Kiwanismanna en þeir greiða allan kostnað við ferðina með ágóða af jólakassaverkefni klúbbsins.

Tilgangur ferðarinnar er að styðja á jákvæðan hátt við unglinga í skólanum. Þetta er fjórða haustið sem Kiwanismenn bjóða nemendum í ævintýraferð af þessu tagi. Í fyrra var farið í Þórsmörk. En fyrirhugað er að fara annaðhvort ár í Þórsmörk og hitt árið í Landmannalaugar. Þannig eiga allir nemendur sem útskrifast úr skólanum að hafa fengið tækifæri til að heimsækja þessar tvær náttúruperlu.

Farið var frá skólanum um klukkan átta og komið heim um kvöldmat. Ferðin tókst vel enda skartaði náttúran sínu fegursta og veðrið gat ekki verið betra. Kiwanismenn reiddu fram mat og drykk í hádeginu sem og grillveislu í lok dags þegar nemendur komu þreyttir og svangir úr gönguferð.

Óhætt er að segja að ánægðir nemendur hafi snúið heim í lok dags. Kiwanismenn eiga þakkir skyldar fyrir höfðinglegt boð.