Fjölgreindaleikar 2021

Fjölgreindaleikar voru haldnir í skólanum í annað sinn dagana 31. maí og 1. júní sl. Markmið leikanna er að vinna að góðum skólabrag. Nemendur á ólíkum aldri unnu saman að lausn verkefna sem reyna á allar greindir mannsins. Leikarnir eru jafnframt keppni í samvinnu og félagsanda á milli hópa. Það reynir ekki síst á leiðtoga hvers hóps, en það eru nemendur úr elstu bekkjum skólans.

Allir nemendur tóku þátt í leikunum og var þeim skipt í 28 hópa og í hverjum hópi voru nemendur af öllum skólastigum. Skólanum var skipt niður í 28 stöðvar og tóku nemendur þátt á öllum stöðvum. Á hverri stöð reyndu nemendur á mismunandi greindir og var fjölbreytni töluverð. Leikarnir tókust vel og virtust nemendur skemmta sér.