Fjölgreindaleikar 2025

Vinningshafar fjölgreindaleikanna 2025
Vinningshafar fjölgreindaleikanna 2025

Í síðastliðinni viku stóð skólinn fyrir fjölgreindaleikum þar sem markmiðið er að virkja ólíka hæfileika nemenda og gefa öllum tækifæri til að njóta sín. Leikarnir byggja á fjölgreindakenningu Howard Gardners og þeim hugmyndum að fólk búi yfir margvíslegum tegundum greindar sem allar eru jafngildar.

Í leikunum vinna nemendur saman í hópum þvert á bekki að fjölbreyttum þrautum sem reyna á: málgreind, rök- og stærðfræðigreind, líkams- og hreyfigreind, rýmisgreind, tónlistargreind, samskiptagreind, sjálfsþekkingargreind og umhverfisgreind.

Stemmingin í skólanum var einstaklega góð og greinilegt að fjölgreindaleikarnir höfða til fjölbreyttra áhugasviða og styrkleika nemenda. Leikarnir eru lærdómsríkir, skemmtilegir og skapa dýrmæt tækifæri til að efla samskipti, samvinnu og skólabrag.