Gjöf frá Kvenfélagi Þorlákshafnar

Grunnskólinn í Þorlákshöfn hefur ávallt notið velvildar í samfélaginu. Félagasamtök
og einstaklingar hafa sýnt hollustu sína við skólann og ungviði bæjarins á ýmsan hátt.
Nú í desember komu konur úr Kvenfélagi Þorlákshafnar færandi hendi í skólann og
gáfu peninga sem nýttir skyldu í þágu unglinganna í skólanum þó svo að það nýtist að
sjálfsögðu öðrum nemendum skólans. Ákveðið var að kaupa húsgögn, teppi, lampa,
spjaldtölvur, hátalara, spil og fleira til að gera ,,glerhýsið“ vistlegra til dæmis fyrir
frímínútnasamveru. Kvenfélag Þorlákshafnar fær innilegar þakkir fyrir hlýhuginn frá
nemendum og starfsfólki skólans.