Glitraðu með einstökum börnum

Glitraðu með einstökum börnum

Á morgun, fimmtudaginn 29. febrúar er alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Þá hvetur félag Einstakra barna öll til að sýna stuðning og samstöðu með því að klæðast einhverju glitrandi.

Hjá okkur eru nemendur sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni og því hvetum við öll til að taka þátt í Glitrandi degi með því að klæðast einhverju glitrandi eins og glimmeri og pallíettum eða vera með einhvern glitrandi fylgihlut á sér.