Göngum í skólann fer af stað

Verkefnið Göngum í skólann hefst í dag, miðvikudaginn 3. september, og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 3. október.

Skólinn okkar tekur að sjálfsögðu þátt í verkefninu eins og undanfarin ár.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni sína til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu,
hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað.

Vonandi sjáum við sem flesta nemendur, og starfsfólk, nota virkan ferðamáta á leið sinni í skólann.