Grunnskólinn í Þorlákshöfn setur skýrari mörk um notkun skólatækja

Við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn viljum leggja okkar af mörkum til að draga úr óþarfa skjánotkun barna og ungmenna. Verkefnastjóri upplýsingatækni hefur því sett upp sjálfvirkar læsingar á tækin utan þess tíma sem þau eiga að nýtast nemendum við námið. Með þessu viljum við stuðla að markvissri notkun skólatækjanna og skilgreina skýrari mörk milli náms, frítíma og hvíldar.

Að okkar mati er mikilvægt að finna jafnvægi milli tveggja mikilvægra sjónarmiða. Annars vegar að vernda börn og unglinga gegn óhóflegri skjánotkun og hins vegar að tryggja að þau öðlist þá stafrænu hæfni sem þeim er ætlað að læra samkvæmt Aðalnámskrá og sem nútímasamfélag krefst í síauknum mæli.

Við hvetjum fjölskyldur jafnframt til að ræða við börnin um skjátíma og skjánotkun og leita leiða sem stuðla að góðum venjum. Með góðu samstarfi heimila og skóla getum við hjálpast að við að skapa börnum og ungmennum heilbrigt jafnvægi í daglegu lífi.