Háaloft hugans - ljóðabók 8. bekkjar lítur dagsins ljós

Nemendur í 8. bekk hafa nýlokið við metnaðarfulla ljóðabókarvinnu sem ber heitið Háaloft hugans. Verkefnið hefur staðið yfir um tíma og fól í sér skapandi nálgun á ljóðagerð, myndskreytingu og bókagerð.
 
Hugmyndin að nafninu „Háaloft hugans“ kom frá Karen kennara þegar hún var að þróa verkefnið. Að hennar sögn má líkja huga mannsins við háaloft – stað sem geymir ótal gersemar sem gaman er að kanna og taka til í. Sú myndlíking varð leiðarljós verkefnisins.
Í upphafi var lögð áhersla á að kynnast ljóðagerð í víðum skilningi. Nemendur fengu að spreyta sig bæði á hefðbundnum og óhefðbundnum ljóðum og kynntust helstu einkennum ljóða, svo sem myndmáli, rími og ljóðstöfum. Einnig var unnið með texta frá ýmsum tónlistarmönnum, þar sem merking texta og áhrif þeirra á hlustendur voru skoðuð og rædd.
 
Undir lok verkefnisins tók sköpunarkrafturinn yfirhöndina þegar hver nemandi bjó til sína eigin ljóðabók. Öll ljóðin voru myndskreytt af teikningum eftir þau sjálf. Lokapunkturinn var svo sameiginleg útgáfa – ein stór ljóðabók sem ber nafnið Háaloft hugans. Skólabókasafnið hefur nú fengið eintak af bókinni, þar sem afrakstur vinnu nemenda fær að njóta sín.
Verkefnið er skýrt dæmi um hvernig hægt er að efla sköpun, tjáningu og dýpri skilning á tungumálinu með fjölbreyttum og lifandi hætti.