Heimsókn frá Byggðasafni Árnesinga

2. bekkur fékk heimsókn frá Byggðasafni Árnesinga í vikunni. Ragnhildur Elísabet kom til okkar og var með örlitla jólastund, og fræddi börnin um jólin áður fyrr. Hún kom auk þess með þrjú jólatré sem eru eftirlíking af Miðengistrénu. Krakkarnir skreyttu trén með skrauti sem þau gerðu sjálf. Herlegheitin fá svo að prýða jólasýningu Byggðasafnsins.