Jólahurðaskreytingakeppni elsta stigs

Það er mikil jólastemming í grunnskólanum og margt gert til að brjóta upp hefðbundna dagskrá. Nemendaráð blés til hurðaskreytingarkeppni meðal bekkja á elsta stigi. Hver bekkur fékk úthlutað ákveðnu efni og tíma til að skreyta sína hurð. Á meðfylgjandi myndum má sjá afraksturinn sem er svo sannarlega jólalegur.