Kaffisala og óskilamunir

Á morgun fimmtudag er foreldradagur í skólanum. Þann dag er ekki skóli hjá nemendum en þau mæta með foreldrum sínum í viðtal til umsjónarkennara.
Nemendur í 10.bekk eru í fjáröflun fyrir skólaferðalagi sem þau fara í, í vor og eru með kaffihlaðborð í sal skólans.

Verð:
Fullorðnir 1500 kr.
Nemendur í 1.-10. bekk 1000 kr.
Frítt fyrir börn yngri en 6 ára.

Óskilamunum hefur verið komið fyrir við inngang skólans í þeirri von að þeirra verði vitjað á viðtalsdaginn í dag eða á morgun.