Kvenfélag Þorlákshafnar færir Grunnskólanum glæsileg taflborð með öllu tilheyrandi

Síðan valgreinin Leikvangur byrjaði nú í haust og nemendur fóru að tefla vikulega hefur áhuginn á skák aukist mikið.
Helga kennari auglýsti eftir taflborðum og gripu Kvenfélagskonur boltann um leið og afhentu nemendum þessi veglegu taflborð.
Nemendur voru fljótir að grípa tækifærið og báðu strax um að tefla!

Við kunnum Kvenfélagi Þorlákshafnar kærar þakkir fyrir gjöfina