Leikhópurinn Lotta í heimsókn

Í gær kom Leikhópurinn Lotta í heimsókn til okkar og flutti leikritið Pínulitla Mjallhvít fyrir nemendur í 1. - 3. bekk. Leikhópinn Lottu þarf vart að kynna en hópurinn hefur glatt unga sem aldna undanfarin ár með skemmtilegum sýningum. Hópurinn heimsótti okkur í tengslum við verkefnið List fyrir alla en verkefnið hefur þann tilgang að miðla vönduðum listviðburðum til barna á grunnskólaaldri. Bæði nemendur og starfsfólk skemmtu sér konunglega á sýningunni.