Leikhúsferð elsta stigs á Ormstungu

Föstudagskvöldið 25. september gafst nemendum á elsta stigi kostur á að fara í leikhúsferð í Þjóðleikhúsið þar sem söngleikurinn Ormstunga er sýndur. Ríflega 70 nemendur tóku þátt í ferðinni og gaman er að segja frá því að það vakti sérstaka eftirtekt hversu unglingarnir okkar komu vel fyrir. Það hins vegar kom okkur ekkert á óvart. Við eigum einfaldlega frábæra unglinga.

Leikhúsferðin var samvinnuverkefni grunnskólans, foreldrafélagsins og félagsmiðstöðvarinnar auk þess sem tvö fyrirtæki styrktu verkefnið með myndarlegum hætti: Það eru fyrirtækin Hafnarnes-Ver og Trésmiðja Heimis Guðmundssonar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Hugmyndin að ferðinni kviknaði í vor og var hugsuð sem hluti af íslenskunámi nemenda. Í aðdraganda sýningarinnar höfðu íslenskukennarar á elsta stigi lesið Gunnlaugs sögu Ormstungu með nemendum, unnið með efni sögunnar og hvatt þá til ígrundunar um persónur, átök og samfélag þess tíma. Með leikhúsferðinni fengu nemendur tækifæri til að upplifa söguna á nýjan og lifandi hátt á leiksviði.

Tilgangur ferðarinnar var meðal annars að efla áhuga nemenda á íslenskum bókmenntum og menningararfinum, auka skilning þeirra á klassískum sögum og kynna fyrir þeim hvernig hægt er að miðla fornum textum á nútímalegu listformi. Ferðin tókst afar vel og skilur eftir góðar minningar hjá nemendum og kennurum.