- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Nemendur í leiklistarvali Grunnskólans í Þorlákshöfn settu nýverið upp leikritið um Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren. Sýningar voru þrjár og fullur salur á öllum sýningum.
Krakkarnir sýndu mikinn metnað og þrautsegju í að undirbúa sýninguna og stóðu sig frábærlega í öllum hlutverkum, bæði á sviði og baksviðs. Leikstjórn var í höndum Örnu Daggar Sturludóttur tónmenntakennara, en hún naut einnig aðstoðar frá fjölmörgum kennurum, foreldrum og starfsmönnum skólans.
Sérstakar þakkir fá Gestur, Róbert Dan, Tómas og Þröstur Ægir sem skipuðu hljómsveit sýningarinnar en tónlistin studdi frábærlega við sýninguna. Einnig kom hluti af kór miðstigs fram í sýningunni bæði sem leikarar og með söng.
Að lokinni frumsýningu voru þau hjónin Halldór Sigurðsson, fyrrverandi skólastjóri, og Ester Hjartardóttir, fyrrverandi kennari, heiðruð sérstaklega fyrir sitt framlag til leiklistar og tónlistar í skólanum enda býr skólasamfélagið að þeirri hefð. Þau voru heiðursgestir sýningarinnar og tóku við hlýjum þökkum frá skólanum.
Stefnt er að því að gera uppsetningu á leikriti aftur að árlegri hefð og eftir þessa frábæru sýningu er ljóst að sú hefð á fullkomlega rétt á sér!
Meðfylgjandi eru myndir úr leikskrá sýningarinnar;