- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Í dag fór Litla upplestrarhátíðin fram hjá nemendum í 4. bekk og tókst hún afar vel. Foreldrum og aðstandendum var boðið að koma og hlýða á upplesturinn og áttu allir saman notalega stund.
Krakkarnir stóðu sig með miklum sóma, lásu skýrt og fallega og sýndu bæði hugrekki og sjálfstraust. Það var greinilegt að þau höfðu lagt mikla vinnu í undirbúninginn og eiga bæði nemendur og umsjónarkennarar hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu.