- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi er börnum og ungmennum boðið að taka þátt í ljósmyndakeppni þar sem þau fá tækifæri til að sýna sitt sjónarhorn á heiminn í kringum sig. Keppnin fer fram í flestum sveitarfélögum á Suðurlandi og verður valin dómnefnd sem velur bestu myndirnar í hverju sveitarfélagi og veitir verðlaun. Þrjár efstu myndirnar fara áfram í sameiginlega stafræna ljósmyndasýningu undir yfirskriftinni "Suðurland með augum barna", þar sem myndir barna alls staðar af Suðurlandi verða sýndar saman.