Morgunfundur með foreldrum

Fimmtudaginn 14. september boðuðu stjórnendur foreldra til morgunfundar hér í skólanum þar sem boðið var upp á kaffi, kleinur og gott spjall.  Fjölmargir foreldrar komu á fundinn þar sem skólastarfið og umferðaröryggismál voru rædd og drög að nýjum skólareglum voru kynntar. Foreldrar tóku vel undir í umræðum og voru jákvæðir út í skólastarfið. Þeir samþykktu nýju skólareglurnar án athugasemda.