Myndlistarval Grunnskólans í Þorlákshöfn, opnar sýningu í Gallerí undir stiganum á Bæjarbókasafninu, 9. maí.

Nemendur í myndlistarvali í Grunnskólanum í Þorlákshöfn ætla að setja upp myndlistarsýningu í Gallerí undir stiganum, Bæjarbókasafni Ölfuss, 9. maí, kl:17:00.
Þema sýningarinnar er Pop List, sem á rætur sínar að rekja til Bretlands og Bandaríkjanna í kringum 1950. Stefnan var sett fram sem ádeila á list ríka fólksins, þar sem þemað var oft á tíðum landslag og fólk og einungis ,,fína" fólkið hafði efni. 
Pop list táknar allt sem er of mikið, vinsælt og ,,kitschy", með dass af kaldhæðni. 
Þeir nemendur sem eiga verk á sýningunni eru;
Birgitta Björt Rúnarsdóttir
Daníel Rúnarsson
Julija Rós Radosavljevic
Paphawee Nanghong
Rebekka Matthíasdóttir
Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir
Sölvi Hrafn Steinþórsson
Svanhildur Eik Ben Sigurðardóttir