- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Í dag var stór dagur á yngsta stigi þegar formlega var stofnað nemendaráð.
Nemendaráðið samanstendur af fulltrúum úr bekkjum yngsta stigs og er hlutverk þess að koma rödd nemenda á framfæri, leggja fram hugmyndir og taka þátt í að gera skólalífið enn skemmtilegra og betra fyrir alla. Á fyrsta fundinum var farið yfir hlutverk ráðsins og rætt um hvað felst í því að vera fulltrúi; að hlusta á aðra, segja skoðun sína og vinna saman.
Síðan var hugstormað af krafti og hugmyndirnar létu ekki á sér standa. Meðal þess sem kom upp var:
Það var greinilegt að hugmyndaflugið er mikið og áhuginn sömuleiðis. Við hlökkum til að fylgjast með starfi nemendaráðsins í vetur og sjá hugmyndirnar þeirra verða að veruleika.