Nemendur hanna hús með lýsingu

Nemendur í 7.bekk unnu á vorönn skemmtilegt verkefni sem gekk út á að hanna hús úr pappakassa og leggja lýsingu í það. Mikil vinna var lögð í verkefnið en auk þess að hanna rými og föndra húsgögn þurftu nemendur að vanda til verka þegar rafmagn var leitt í perurnar. Tilgangur verkefnisins var meðal annars að nemendur átti sig á hringrás rafmangs. Meðfylgjandi eru myndir af þessum glæsilegu húsum.