Nýr aðstoðarskólastjóri við Grunnskólann í Þorlákshöfn

 Í vor var staða aðstoðarskólastjóra auglýst, þrjár umsóknir bárust. Eftir umsóknarferlið var Jónína Magnúsdóttir metin hæfust umsækjenda og ráðin í stöðuna. Jónína er skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar. Hún hefur verið í skólastjórnun frá árinu 1998 en hún var áður skólastjóri og aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Siglufjarðar. Þá var hún einnig skólafulltrúi Siglufjarðarbæjar í tvö skólaár. Jónína er að auki með góða kennslureynslu en hún hóf störf við kennslu haustið 1987 og starfaði sem kennari við Snælandsskóla í Kópavogi og við Grunnskóla Siglufjarðar.

Jónína útskrifaðist með B.Ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 1987 auk þess sem hún lauk Dipl. Ed gráðu í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórunun menntastofnana frá sama skóla árið 2005. Í vor lauk Jónína MCM meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.

Jónína er fædd árið 1963 og er gift Ragnari Aðalsteinssyni. Þau eiga tvo uppkomna syni og eitt barnabarn. Jónína mun hefja störf við Grunnskólann á haustmánuðum.