Í dag fór fram spennandi Ólsen Ólsen keppni á miðstigi. Nemendaráð miðstigs stóð fyrir viðburðinum í samstarfi við kennara á stiginu. Viðburðurinn tókst mjög vel og skemmtu nemendur sér mjög vel.
Það var Ananda Keawsanlow í 6.bekk sem stóð uppi sem sigurvegari.