- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Yngstu nemendur skólans fengu skemmtilega tónlistarupplifun þegar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands bauð þeim á tónleika í Þorlákskirkju. Yfirskrift tónleikanna að þessu sinni var Galdrar í tónlist.
Eins og alltaf á skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands fá nemendur ekki aðeins að hlusta heldur taka þeir sjálfir þátt í tónleikunum með því að syngja með hljómsveitinni. Að þessu sinni var lokalagið Af stað að hitta karlinn úr Galdrakarlinum í Oz og tóku nemendur duglega undir.
Við þökkum Sinfóníuhljómsveit Suðurlands kærlega fyrir frábæra tónlistarupplifun og fyrir að gefa nemendum tækifæri til að kynnast töfrum lifandi tónlistar á skemmtilegan og eftirminnilegan hátt.