Skemmtileg heimsókn um borð í varðskipið Þór

Í morgun fengu allir nemendur einstakt tækifæri til að heimsækja varðskipið Þór, sem liggur nú við höfn í Þorlákshöfn. Heimsóknin var í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands, en af því tilefni hefur Landhelgisgæslan boðið landsmönnum að koma um borð í varðskipin og kynna sér starfsemi þeirra.

Það var sannkallað blíðskaparveður þegar nemendur og starfsfólk héldu niður að höfn. Nemendum var skipt í tvo hópa, um 150 nemendur í hvorum hópi, sem fengu að koma um borð og skoða skipið.

Áhöfn Þórs tók einstaklega vel á móti okkur og gaf nemendum færi á að kynnast skipinu og starfseminni um borð. Nemendur voru mjög áhugasamir og greinilegt að heimsóknin vakti mikla lukku.

Við þökkum Landhelgisgæslu Íslands og áhöfn varðskipsins Þórs kærlega fyrir höfðinglegar móttökur og fyrir að gefa nemendum okkar þetta skemmtilega og fróðlega tækifæri.

Við óskum Landhelgisgæslunni jafnframt innilega til hamingju með 100 ára afmælið!