Skjálfti 2023

Sunnlensk ungmenni áttu sviðið í Skjálftanum sem fór fram í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn laugardagskvöldið 11. nóvember. Skjálftinn er byggður á Skrekk, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Reykjavíkurborgar, og fór hann nú fram í þriðja sinn, en í fyrsta sinn með áhorfendum þar sem fyrstu tvær keppnirnar voru undir áhrifum heimsfaraldurs. Atriðin komu frá sjö sunnlenskum skólum sem tóku þátt þetta árið og má með sanni segja að atriðin hafi hreyft við þeim 500 áhorfendum sem voru á staðnum enda boðskapurinn oftar en ekki djúpur og með alvarlegum undirtón. Í Skjálftanum, líkt og Skrekk, er lögð mikil áhersla á að ungmennin sjálf þrói atriðin, allt frá hugmynd að lokaútkomu á sviði og því endurspegla atriðin hugðarefni þeirra og má segja að keppnirnar séu farvegur fyrir raddir ungs fólk á hverjum tíma. Ásamt því að móta listrænu hlið atriðanna þurfa þau líka að hugsa um tæknilegar útfærslur, hljóð, ljós, búninga, förðun og fleira og leggja mikinn tíma og vinnu í þetta skapandi ferli sem reynir á þrautseigju, skapandi hugsun og samvinnu. 

Dómnefnd skipuðu leikararnir og tónlistarfólkið Júlí Heiðar, Þórdís Björk og dansarinn Ástrós Guðjónsdóttir. Þau fengu það erfiða verkefni að velja á milli atriðanna sem voru öll virkilega metnaðarfull og vel útfærð. Niðurstaðan var að Grunnskólinn í Þorlákshöfn hreppti 3. sætið, Vallaskóli á Selfossi 2. sætið og Grunnskólinn í Hveragerði sigraði Skjálftann 2023.