- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Forkeppni Skólahreystis í Grunnskólanum í Þorlákshöfn fór fram miðvikudaginn 22. apríl við mikla gleði og hamingju allra viðstaddra. Mikil stemning ríkti í íþróttahúsinu á meðan forkeppninni stóð og fengu keppendur öfluga hvatningu frá samnemendum sínum og öðru starfsfólki skólans sem skapaði jákvætt og hvetjandi andrúmsloft.
Þjálfun keppenda var í höndum íþróttakennaranna Hólmfríðar Fjólu og Ingibjargar Steinunnar en skólahreysti er ein af valsmiðjum í unglingadeild. Þjálfararnir hafa staðið sig afar vel í að undirbúa krakkana og var liðsandinn góður enda kraftmiklir, metnaðarfullir og duglegir unglingar og kennarar sem að verkefninu stóðu.
Riðlakeppnin fór fram miðvikudaginn 6. maí í íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ og var keppnin í beinni útsendingu á RÚV. Þar lenti lið skólans í 3. sæti í riðlinum en okkar fulltrúar sýndu mikla seiglu og elju í krefjandi þrautum.
Fulltrúar skólans í undankeppninni voru Gunnar Ægir, Hreiðar Leó, Jara Björg og Guðrún Olga, en varamenn voru Alexander Jón og Sóldís Sara.
Nemendur á elsta stigi fóru með til að hvetja keppendur og stóðu þeir sig með glans enda mikil stemmning í hópnum sem skilaði sér í öflugum stuðningi við keppendur. Það er óhætt að segja að Skólahreysti sé mikilvægur og jákvæður þáttur í skólastarfinu sem eflir samkennd, sjálfstraust og hreyfigleði nemenda. Skólinn er afar stoltur af liðinu sínu og öllum þeim sem komu að verkefninu.
