- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar/forráðamenn
- Stoðþjónusta
- Myndir
- Matseðill
- Gagnlegt efni
Þriðjudaginn 10. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Þorlákshöfn og þar með lauk enn einu viðburðaríku og farsælu skólaári.
Skólaárið einkenndist af fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Nemendur tóku þátt í fjölmörgum verkefnum og viðburðum, meðal annars Erasmus+ samstarfi, lestrarátaki, Skólahreysti, danssýningu, Þorpinu, upplestrarkeppnum og fjölbreyttu félagslífi. Áhersla var lögð á vináttu, virðingu og vellíðan í samræmi við einkunnarorð skólans.
Hápunktur dagsins var hátíðleg útskrift 10. bekkjar. Að þessu sinni útskrifuðust 31 nemandi frá skólanum. Umsjónarkennarar árgangsins voru þær Anna Sólveig Ingvadóttir og Eva Káradóttir sem hafa fylgt nemendunum af alúð og fagmennsku.
Við útskriftina ríkti hlý og hátíðleg stemning. Ljóst er að framtíð þessara glæsilegu ungmenna er björt og þau búa yfir fjölbreyttum styrkleikum og hæfileikum sem eiga eftir að nýtast þeim vel á komandi árum.
Skólaslitin voru jafnframt þau síðustu hjá Ólínu Þorleifsdóttur skólastjóra sem kvaddi skólasamfélagið með þakklæti fyrir traustið, samstarfið og öll þau dýrmætu kynni sem hún hefur átt í gegnum árin.
Við óskum útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann og öllum nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki gleðilegs sumars.